Samstöðufundur með RÚV

Boðað hefur verið til almenns samstöðufundar með Ríkisútvarpinu í Háskólabíói í dag kl 18:00. Í frétt frá undirbúningshópi segir að í 83 ár hafi Ríkisútvarpið verið einn öflugasti hornsteinn íslenskrar menningar. Það hafi frá upphafi miðlað fjölbreyttri dagskrá talaðs máls, fræðslu, tónlistar og myndefnis. Þar að auki hafi Ríkisútvarpið verið öflugur framleiðandi menningarefnis og hefur lagt metnað sinn í að bera fram eitthvað fyrir alla, unga sem aldna. Á Ríkisútvarpinu hafi kunnáttufólk spunnið lifandi þráð sem tengi forna tíð og nýja á þessu landi. Ríkisútvarpið sé einn öflugasti spegill íslenskrar þjóðar.

Síðan segir: „Nú hefur verið vegið að rótum sköpunarstarfs á Ríkisútvarpinu. Mikill niðurskurður fjárveitinga hefur leitt til uppsagna margra tuga starfsmanna sem af víðáttumikilli þekkingu hafa frætt þjóðina og veitt henni andlega næringu.   Ekki verður séð að þessar uppsagnir eigi sér nokkra stoð í stefnumótun eða hlutverki Ríkisútvarpsins. Þær virðast tilviljanakenndar og stjórn stofnunarinnar hefur ekki lagt fram neinar áætlanir um hvernig halda á áfram lögbundnu starfi Ríkisútvarpsins eftir þessar róttæku aðgerðir.“

Ávörp á fundinum flytja Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Melkorka Ólafsdóttir tónlistarkona, Sigríður Ólafsdóttir lífefnafræðingur og Kolbeinn Óttarsson Proppé upplýsingafulltrúi og fyrrverandi blaðamaður. Hljómsveitin Sammi og félagar taka á móti gestum og Guðrún Pétursdóttir lífeðlisfræðingur stýrir fundinum.

í tilefni af samstöðufundinum hafa verið gefin út tvö ný myndbönd og verður seinna myndbandið frumsýnt síðar í dag en það fyrra má nálgast hér.