Samstöðu og samúðarkveðja frá BÍ

Hjálmar Jónsson formaður BÍ hefur á vettvangi Evrópusambands blaðamanna (EFJ)  sent frá sér stuðnings- og samúðarkveðjur vegna hryðjuverkanna í París í gær. Kveðjan er svohljóðandi:

Blaðamannafélag Íslands fordæmir hryllilega árás á ritstjórnarskrifstofur Charlie Hebdo í París í gær og lýsir samstöðu og samúð með þeim kollegum sem þar voru drepnir. Í  minningu fórnarlamba þessarar grimmilegu árásar er brýnt að undirstrika að táningarfrelsi verður ekki drepið með byssukúlu. Þessi atburður mun ekki ógna né þagga niður í blaðamönnum og frjálsri fjölmiðlun – í dag erum við öll Charlie!  Við sendum ættingjum og vinum fónarlambanna okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Hjálmar Jónsson, formaður BÍ