Sænskir blaðamenn látnir lausir í Sýrlandi

Alþjóðasamband blaðamanna (IFJ) hefur opinberlega hrósað Blaðamannafélagsi Svíþjóðar, Svenska Journalistförbundet, fyrir þrotlausa og árangursríka vinnu við að fá tvo sænska fjölmiðlamenn látna lausa úr haldi í Sýrlandi. Blaðamennirnir Magnus Falkehed, sem vinnur fyrir Dagens Nyheter út frá París og   free lance ljósmyndarinn Niclas Hammarström hafa á undanförnum dögum hvor í sínu lagi verið látnir lausir úr haldi óþekktra hópa uppreisnarmanna. Þeir höfðu verið teknir til fanga í nóvember síðast liðnum.

 Sjá einnig hér