Ráðstefna um um tjáningarfrelsi og samfélagslega ábyrgð

Grímur Sigurðsson, útvarpsvirkjameistari, er hér á svipuðum aldri og hann var þegar hann horfði fyrs…
Grímur Sigurðsson, útvarpsvirkjameistari, er hér á svipuðum aldri og hann var þegar hann horfði fyrstur Íslendinga á sjónvarp árið 1934

Háskólinn á Akureyri efnir til ráðstefnu að Sólborg á Akureyri á mánudaginn kemur, 29. september þar sem umfjöllunarefnið er tjáningarfrelsi og samfélagsleg ábyrgð. Sex erindi verða flutt af innlendum og erlendum fræðimönnum. Ráðsetnan er öllum opin en hún fer fram á ensku fyrir hádegi, en erindi og umræður verða á íslensku eftir hádegi.  Tilefni ráðstefnunnar er að um þessar mundir eru 80 ár liðin frá því að fyrst var horft á sjónvarp á Íslandi, en það gerðu þeir Grímur SIgurðsson, síðar útvarpsvirkjameistari og F.L. Hogg, breskur verkfræðingur sem hingað hafði komið á vegum trúboðans Arthurs Gook og Sjónarhæðarsafnaðarins. Þeir horfðu á tilraunaútsendingar frá Crystal Palace Studios í London á bernskuskeiði sjónvarps í heiminum, milli 1934 og 1935.  Af þessu tilefni verður jafnframt afhjúpuð "söguvarða" við Eyrarlandsveg þar sem þessarar tilrauna í sjónvarpsmálum er minnst.

Hér má sjá dagskrá ráðstefnunnar:

 

Tjáningarfrelsi og félagsleg ábyrgð - Kenningar og útfærsla

Ráðstefna haldin í Háskólanum á Akureyri 29. September, stofu M102

  Í tilefni af því að  um þessar mundir eru liðin 80 ár frá því að fyrst var horft á sjónvarp á Íslandi (Akureyri) efnir námslína í fjölmiðlafræði við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri til opinnar ráðstefnu um tjáningarfrelsið og þá félagslegu ábyrgð sem því fylgir. 

 

10:00 Ráðstefnan sett  Ráðstefnustjóri: Sigrún Stefánsdóttir

10:15 Thomas Hoeren, prófessor við   Muenster háskóla í Þýskalandi:
„Legal challenges for a free press and its social responsibilities“ 

10:50  Markus Meckl, prófessor við Háskólann á Akureyri:
„Two concepts of freedom English and German“

11:20 Mikael Karlsson, fyrrv. Prófessor við Háskóla Íslands:
„Free Speech, Freedom of the Press, and the Tapestry of Lies“ 

12:00  Pallborðsumræður með frummælendum

12: 30  Hádegishlé

13:30 Birgir Guðmundsson, dósent við Háskólann á Akureyri og Sigurður Kristinsson prófessor við Háskólann á Akureyri:
„Íslenskir blaðamenn og kenningar um fagstéttir“

14:05 Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar:
Réttindi og skyldur fjölmiðla, með hliðsjón af 26. grein laga um fölmiðla -  Snertifletir við Siðanefnd BÍ.

14:40 Andrea Hjálmsdóttir, lektor við Háskólann á Akureyri:
„Ábyrgð fjölmiðla – kynjahugmyndir ungmenna“

 15: 15  Pallborðsumræður með frummælendum

 15: 45 Málþingsslit

 ***

16:00  Afhjúpun söguvörðu um fyrsta sjónvarp á Íslandi á útsýnisstað á Eyrarlandsvegi.