Prentverk í hættu vegna samdráttar hjá prentmiðlum

 

Samdráttur í útbreiðslu prentmiðla, einkum vikublaða og tímarita ógna nú tilvist Aller prentsmiðjunnar í Noregi  en þar vinna nú  rúmlega 90 manns mest grafískir hönnuðir.  Prentsmiðjan er í eigu danskra aðila og hafa tekjur hennar farið minnkandi undanfarin ár samhliða erfiðleikum í prentaðri útgáfu og minnkandi lestri.  Þannig var afkoman fyrir skatta  jákvæð upp á um 15 milljónir norskra króna árið 2010 en var í fyrra neikvæð um  rúmar 10 milljónir.  Prentsmiðjan er staðsett í Nittedal rétt utan við Osló og er til umræðu að flytja verkefni hennar til systurverksmiðju í Tostrup í Danmörku. Hins vegar  hafa verið viðraðar áhyggjur af því að ef þróunin verði  jafn neikvæð í útbreiðslu og lestri prentmiðla sé tilverugrundvelli beggja prentsmiðjanna í raun ógnað.

Sjá meira hér