Prentmiðlar með stærstan hluta auglýsingakökunnar á Íslandi

Mjög áhugaverðar upplýsingar um auglýsingamarkaðinn á Íslandi árið 2014  hafa verið birtar á vef Fjölmiðlanefndar en þar er í fyrsta sinn tekið saman hvernig auglýsingar  eða birtingarfé skiptis milli miðla á Íslandi.  Í ljós kemur að prentmiðlar fá stærstan hluta auglýsingakökunnar en sjónvarp fylgir fast á eftir. Þá  kemur í ljós að 2,6% alls birtingarfjár rennur til erlendra veffyrirtækja s.s. Google og Facebook sem er minna en í nágrannalöndum okar.  Samantektin er unnin í samstarfi Fjölmiðlanefndar og fimm stærstu birtingarhúsanna á Íslandi.

 Sjá nánar hér