Óskað eftir tilnefningum til verðlauna á Degi íslenskrar náttúru

Rúnar Pálmason er handhafi Fjölmiðlaverðlauna umhverfis- og auðlindaráðuneytisins 2012. Hér er hann …
Rúnar Pálmason er handhafi Fjölmiðlaverðlauna umhverfis- og auðlindaráðuneytisins 2012. Hér er hann ásamt Svandísi Svavarsdóttur, þáverandi umhverfis- og auðlindaráðherra

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir eftir tilnefningum til tvennra verðlauna sem afhent verða á Degi íslenskrar náttúru, 16. september næstkomandi. Annars vegar er um að ræða Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og hins vegar Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti.

Fjölmiðlaverðlaunum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins er ætlað að hvetja til hverskyns umfjöllunar um íslenska náttúru, hvort heldur er í því skyni að vekja athygli á einstakri náttúru landsins eða benda á þær ógnir sem steðja að íslenskri náttúru og mikilvægi þess að varðveita hana og vernda til framtíðar.

Verðlaunin verða veitt fjölmiðli, ritstjórn, blaða- eða fréttamanni, dagskrárgerðarfólki eða ljósmyndara sem hafa skarað fram úr með umfjöllun sinni um íslenska náttúru. Til greina koma einstök verkefni eða heildarumfjöllun um íslenska náttúru.

Í fyrra voru verðlaunin veitt, Rúnari Pálmasyni, blaðamanni á Morgunblaðinu,  fyrir ítarlega umfjöllun um akstur utan vega.

 

Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar í Brattholti
Þá verður Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar í Brattholti veitt einstaklingi sem hefur unnið markvert starf á sviði náttúruverndar. Sigríður Tómasdóttir, fæddist 24. febrúar 1871 í Brattholti. Sigríður var baráttukona og náttúruverndarsinni sem lagði mikið á sig í baráttu gegn virkjun Gullfoss. Hún var því brautryðjandi á sviði náttúruverndarmála hér á landi og hefur æ síðan verið íslenskum náttúruverndarsinnum fyrirmynd.

Óskað er eftir tilnefningum til beggja viðurkenninga fyrir 16. ágúst 2013. Tilnefningar með rökstuðningi sendist umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík, eða á netfangið postur@uar.is">postur@uar.is