Orlofshús BÍ um páska

Auglýst er eftir umsóknum vegna dvalar í orlofshúsum BÍ um páskana 2013 frá miðvikudeginum 27. mars til þriðjudagsins 2. apríl. Orlofshúsin eru fjögur talsins, raðhús á Akureyri, Stóra-Brekka, Litla-Brekka og Stykkishólmur. Leiguupphæð um páska er sú sama og leiguupphæð að sumri.
Umsóknarfrestur er til föstudagsins 15. mars og ber að sækja um á netfangið orlofshus@press.is
Við úthlutun er tekið mið af því hvort félagar eru fullgildir, hversu lengi þeir hafa verið í félaginu og hvort þeir hafi áður fengið úthlutað um páska.