Orlofshús BÍ um páska

Athygli félagsmanna er vakin á því að umsóknarfrestur til þess að sækja um leigu í orlofshúsum BÍ í Stykkishólmi, Brekkuskógi og á Akureyri  um páska 2014 er til fimmtudagsins 20. mars næstkomandi.  Umsóknir sendist á netfangið orlofshus@press.is

 

Leigutími er frá miðvikudeginum 16. apríl til þriðjudagsins 22. apríl.  Leiguverð er það sama og að sumri, 15 þús. fyrir Litlu-Brekku, 20 þús. fyrir Stóru-Brekku og  28 þús. fyrir Stykkishólm, en þar eru þrif innifalin.