Óli varaformaður- Egill gjaldkeri

Óli Kristján Ármannsson, varaformaður BÍ
Óli Kristján Ármannsson, varaformaður BÍ

Á síðasta fundi stjórnar Blaðamannafélagsins skipti stjórnin með sér verkum upp á nýtt, en Sigurður Már Jónsson, sem verið hafði varaformaður sagði sig frá trúnaðarstörfum fyrir félagið á dögunum þegar hann tók við starfi blaðafulltrúa ríkisstjórnarinnar.

Nýr varaformaður er Óli Kristján Ármannsson sem var áður gjaldkeri stjórnar.  Við starfi gjaldkera tekur Egill Ólafsson.