Öryggi blaðamanna

Í þessu myndbandi frá vefsjónvarpi Evrópuráðsins er fjallað um hættur sem steðja að öryggi blaðamanna, en þetta er viðvarandi vandamál í Evrópu ekki síður en annars staðar í heiminum. Evrópuráðið vinnur að því að setja saman viðmiðunarreglur um öryggi blaðamanna þar sem það er gert  að lagalegri skyldu að vernda rannsóknarblaðamenn gegn hótunum og ógn og að sækja til saka þá sem brjóta á þeim.