Nýir kjarasamningar undirritaðir í dag

Formenn samninganefnda SA og BÍ, Maj-Britt Briem og Sigríður Dögg Auðunsdóttir, undirrita kjarasamni…
Formenn samninganefnda SA og BÍ, Maj-Britt Briem og Sigríður Dögg Auðunsdóttir, undirrita kjarasamning í dag að viðstöddum Aðalsteini Leifssyni, settum sáttasemjara.

Nýir kjarasamningar Blaðamannafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins voru undirritaðir í dag. Samningarnir byggja á grunni Stöðugleikasamningsins sem gerður var milli SA og sambanda og félaga ASÍ í mars sl. Samkvæmt samningunum taka launahækkanir gildi um næstu mánaðamót og gilda afturvirkt frá 1. febrúar. Kjarasamningarnir verða kynntir félagsmönnum á næstu dögum og í framhaldi verður haldin rafræn atkvæðagreiðsla um þá. Samningarnir eru annars vegar aðalkjarasamningur BÍ við SA, sem Árvakur, RÚV og SÝN eiga aðild að, og hins vegar kjarasamningur milli Félags fréttamanna og RÚV. Kjaraviðræður við aðra miðla fara fram í kjölfar þessara undirritana og byggja á aðalkjarasamningnum.