Nám fyrir starfandi blaðamenn í Berlín

Frjálsi háskólinn í Berlín hefur nú auglýst eftir umsóknum um námsdvöl í Berlín fyrir reynda blaðamenn í Evrópu eða í Bandaríkjum. Um er að ræða styrk til dvalar við Frjálsa háskólann eða Freie Universität. Blaðamenn geta fengið tækifæri til tveggja anna dvalar við Freie Universitaet á meðan þeir eru í leyfi frá stöðum sínum í heimalandinu. Prógrammið hefst í október 2015og stendur fram í júlí 2016.

Einu skilyrðin sem uppfylla þarf er að viðkomandi sé starfandi blaðamaður og að hann hyggist vinna að fræðilegu verkefni á sviði blaðamennsku. Fjárhagslegi styrkurinn nemur um 1.500 evrum á mánuði en getur þó verið meiri eða minni eftir því hvers konar styrk er um að ræða. Umsóknarfrestur er til 28. febrúar næstkomandi.
Sjá frekari upplýsingar hér