Mikilvægi samtaka blaðamanna

Mogens Blicher Bjerregård
Mogens Blicher Bjerregård

Mogens Blicher Bjerregård, forseti Evrópusambands blaðamanna, gerir mikilvægi stéttarfélaga/fagfélaga að umtalsefni í leiðara sínum í nýjasta fréttabréfi Evrópusamtakanna EJF FOCUS.   Hann segir að félög blaðamanna séu í lykilhlutverki við að varðveita til lengri tíma réttindi blaðamanna og vinnuskilyrði og þar með að stuðla að frjálsri fjölmiðlun á svæðinu. Bjerregård segir enn fremur að bæði EFJ og IFJ hafi á umliðnum árum beitt sér kröftuglega í réttindabaráttu blaðamanna í Evrópu og það muni áfram verða gert til að tryggja réttindi, starfsumhverfi og öryggi stéttarinnar.

Sjá fréttabréfið hér