Mikill sigur!

„Ég fagna þessari niðurstöðu  og þetta er mikill sigur sem sýnir að  það þarf að festa betur í sessi meginreglur tjáningarfrelsis á íslandi,“ segir Hjálmar Jónsson formaður Blaðamannafélags Íslands um dóm Mannréttindadómstóls Evrópu sem féll í morgun í máli Erlu Hlynsdóttur gegn íslenska ríkinu.  Hjálmar  segir  þröngan skilning á mikilvægi tjáningarfrelsis fjölmiðla margsinnis hafa komið fram í dómum íslenskra dómstóla á umliðnum árum og þeir hafi þannig  lagt stein í götu blaðamennsku og fjölmiðlunar í landinu. Það sé óskandi að nú verði breyting á, því tjáningarfrelsið sé hornsteinn lýðræðislegra samfélagshátta og ekkert annað meðal  jafn öflugt til til að uppræta spillingu og ranglæti.

Í dómi MDE í morgun er niðurstaðan sú að ís­lenska ríkið hafi brotið 10. grein ­sátt­málans   sem fjall­ar um tján­ing­ar­frelsið, en Mann­rétt­inda­sátt­mál­inn hef­ur verið lög­festur á Íslandi. Íslenska rík­inu er gert að greiða Erlu 8.000 evr­ur í bæt­ur, en það svar­ar til um 1.200 þúsund króna.

Sjá frekari umfjöllun og viðbrögð Erlu hér
Sjá dóminn í heild sinni hér