Málþing - Hvað ógnar ritstjórnarlegu sjálfstæði?

Hvers vegna er ritstjórnarlegt sjálfstæði mikilvægt? Fyrir hverja? Hvernig er hægt að tryggja það? Með betra starfsöryggi blaðamanna? Hvað ógnar því? Þetta og fleira verður rætt á málþingi Blaðamannafélags Íslands og fjölmiðlanefndar sem fram fer í Kornhlöðunni fimmtudagskvöldið 18. september. Málþingið hefst kl.  kl. 20:00 og eru allir velkomnir.

Í pallborði verða: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir blaðamaður og fyrrv. formaður BÍ, Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri 365, Hallgrímur Thorsteinsson, ritstjóri DV og Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar.

Fundarstjóri verður Arna Schram, fyrrv. formaður BÍ.

Að loknum framsögum verða fyrirspurnir og almennar umræður. Miðað er við að málþingið standi yfir til kl. 22:30.

Í boði verður kaffi og léttar veitingar á hóflegu verði fyrir félagsmenn