Málþing fjölmiðlanefndar um reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði

Fjölmiðlanefnd   stendur   fyrir   opnu   málþingi   um   reglur   um   ritstjórnarlegt   sjálfstæði   að

Hannesarholti við Grundarstíg  10, í dag   fimmtudaginn  16. maí  kl. 14.00 til  16.30. Fjallað
verður um ákvæði laga um fjölmiðla nr. 38/2011 sem gera fjölmiðlum sem sinna fréttum og
fréttatengdu efni að setja sér reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði starfsmanna. Fjölmiðlanefnd
telur mikilvægt að stuðla að  faglegri umræðu um skyldu  fjölmiðla til að setja sér slíkar
reglur  og  efni  þeirra  og tryggja  að mismunandi  sjónarmið  komi  fram,  jafnt  útgefenda,
ritstjóra og blaðamanna.  
Til   umfjöllunar   á   málþinginu   verður   m.a.   efni   og   inntak   slíkra   reglna   og   hvernig
ritstjórnarlegu sjálfstæði sé best fyrir komið í slíkum reglum. Þá verður rætt um hvort sömu
sjónarmið eigi að gilda um setningu slíkra reglna hvað varðar prentmiðla og ljósvakamiðla,
einkarekna miðla og ríkismiðla, staðbundna fjölmiðla og fjölmiðla sem ætlað er að ná til alls
landsins og frímiðla og áskriftarmiðla? Ber að tryggja ritstjórnarlegt sjálfstæði ritstjóra og
blaða­   og   fréttamanna   gagnvart   eigendum   eða  á  eigendum   að   vera   frjálst   að   móta   og
framfylgja eigin ritstjórnarstefnu? Eru aðrar leiðir hentugri til að tryggja réttindi blaða­ og
fréttamanna, t.d. í gegnum kjarasamninga eins og gert er á Norðurlöndunum? 
Karl   Axelsson,   settur   formaður   fjölmiðlanefndar   verður   fundarstjóri   og   stýrir  jafnframt
pallborði. Elfa Ýr Gylfadóttir framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar mun fara yfir forsögu og
inntak ákvæðis laga um fjölmiðla nr. 38/2011 um skyldu til að setja slíkra reglur. Að því
loknu mun Pétur Árni Jónsson, útgefandi Viðskiptablaðsins og Fiskifrétta fjalla um hvort
reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði eigi rétt á sér. Því næst tekur Ólafur Stephensen, ritstjóri
Fréttablaðsins til máls og fjallar um mikilvægi siðareglna. Að lokum fjallar Björn Vignir
Sigurpálsson   blaðamaður   og   formaður   Siðanefndar   BÍ   um   ritstjóra   í   lykilhlutverkum.
Guðrún Hálfdánardóttir fréttastjóri mbl.is og Anna Kristín Jónsdóttir, stjórnarmaður í Félagi
fréttamanna á Ríkisútvarpinu munu síðan taka þátt í pallborðsumræðum að loknum erindum
ásamt frummælendum. 
Málþingið er öllum opið og án endurgjalds.