Leitað tilnefninga til Blaðamannaverðlauna

Verðlaunanefnd Blaðamannaverðlauna BÍ óskar eftir tilnefningum til verðlauna fyrir árið 2020, en verðlaunin verða veitt í 18. skipti 26. mars næstkomandi. Tilnefningar dómnefndar verða kynntar viku fyrir afhendingu en skilafrestur tilnefninga til dómnefndar er föstudagurinn 12. febrúar 2021.

Eins og síðustu ár verða verðlaunin veitt í fjórum flokkum:

  • Besta umfjöllun ársins 2020
  • Viðtal ársins 2020
  • Rannsóknarblaðamennska ársins 2020
  • Blaðamannaverðlaun ársins 2020

Hægt er að senda inn tilnefningar til verðlaunanna til skrifstofu Blaðamannafélagsins í Síðumúla  23 á auglýstum skrifstofutíma ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni. Jafnframt verður flljótlega hægt að senda tilnefningar inn rafrænt með hnappi hér á forsíðu vefsins 

Tilnefningar dómnefndar verða sem fyrr segir gerðar kunnar ann 19. mars, viku áður en verðlaunin sjálf verða afhent 26. mars

Tilnefnið hér