Laust starf blaðamanns

Tímaritið Nýtt líf leitar að hugmyndaríkum blaðamanni í fullt starf næstu 9-10 mánuði. Þekking á tísku, hönnun eða öðrum skapandi greinum kæmi sér vel. Reynsla af blaðamennsku er skilyrði. Þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Ritstjórn blaðsins hefur einnig laus pláss fyrir öfluga starfsnema. Leitað er að meistaranemum í námi tengdu blaðamennsku sem vilja kynnast tímaritaútgáfunni. Starfsnemi gengur í öll verk ritstjórnarinnar fær vinnuframlag sitt hugsanlega metið til eininga.

Óskað er eftir að fá umsókn og ferilsskrá merkta „Starfsumsókn“ senda á netfangið nyttlif@birtingur.is  Umsóknarfrestur rennur út í dag, 12 desember!