Kjarasamningar samþykktir með yfirgnæfandi meirihluta

Formenn samninganefnda SA og BÍ, Maj-Britt Briem og Sigríður Dögg Auðunsdóttir, við undirritun kjara…
Formenn samninganefnda SA og BÍ, Maj-Britt Briem og Sigríður Dögg Auðunsdóttir, við undirritun kjarasamninga 20. maí að viðstöddum Aðalsteini Leifssyni, settum sáttasemjara.

Klukkan tólf á hádegi í dag, 31. maí, lauk rafrænni atkvæðagreiðslu um nýgerða kjarasamninga BÍ við SA, ásamt samningi Félags fréttamanna við SA/RÚV ohf. Niðurstaðan var afgerandi: Samningarnir voru samþykktir með yfirgnæfandi meirihluta greiddra atkvæða.

Alls greiddu 136 atkvæði um samning BÍ við SA, 124 með og 5 á móti, þ.e. um 92 prósent samþykktu. 435 voru á kjörskrá.

Af þeim 48 sem voru á kjörskrá Félags fréttamanna greiddu 27 atkvæði; 26 með en 1 á móti. Það samsvarar því að 97 prósent þeirra sem greiddu atkvæði samþykktu samninginn.

Niðurstöðurnar hafa verið tilkynntar viðsemjendum BÍ hjá Samtökum atvinnulífsins og til Ríkissáttasemjara, sem heldur utan um gagnagrunn allra kjarasamninga.

Samningarnir byggja á grunni Stöðugleikasamningsins sem gerður var milli SA og sambanda og félaga ASÍ í mars sl. Samkvæmt samningunum taka launahækkanir gildi um mánaðarmótin og gilda afturvirkt frá 1. febrúar.

Kjaraviðræður við aðra miðla eru yfirstandandi og byggja á aðalkjarasamningnum. Greidd verða atkvæði um þá inni á hverjum vinnustað sem um ræðir.

Meira um kjarasamningana hér.