Kaffispjall í dag með Óskars- og Pulitzer verðlaunahafanum Lauru Poitras

Miðstöð um rannsóknarblaðamennsku á Íslandi og Blaðamannafélag Íslands bjóða í óformlegt kaffispjall með verðlaunahafanum Lauru Poitras í Gym and Tonic á KEX hostel frá kl.  1700 til ca. 1800 í dag föstudag. Blaða og kvikmyndagerðarmenn hvattir til að líta við og spjalla við Lauru.

Á morgun laugardag er mynd hennar um Edward Snowden, Citizen Four, frumsýnd á Reykjavík Shorts and Docs hátíðinni í Bíó Paradís. Eftir sýninguna situr Laura fyrir svörum.