IFJ með nýja heimasíðu

Alþjóðasamband blaðamanna (IFJ) tók í gær í notkun nýja vefsíðu sem samtökin segja að muni efla tengsl þeirra við félagsmenn  og starf þeirra almennt. Forseti Alþjóðasambandsins Jim Boumelha skrifaði opnunarávarp á síðuna og segir þar m.a.: “Þessi nýja síða byggir ekki bara á nýjustu tækni og lítur betur út en sú gamla – það gera flestar nýjar vefsíður - en hún útskýrir líka betur hvað það er sem við erum hvað við gerum og gefur  félagsmönnum sjálfum og starfsemi þeirra aukið vægi.”

Sjá síðuna hér