Í hörðum slag - Íslenskir blaðamenn II

Frá formlegri útgáfu bókarinnar í húsakynnum BÍ sl. föstudag.  (Mynd: Morgunblaðið/Goli)
Frá formlegri útgáfu bókarinnar í húsakynnum BÍ sl. föstudag. (Mynd: Morgunblaðið/Goli)

Í hörðum slag, íslenskir blaðamenn II er nafnið á nýrri bók sem Blaðamannafélagið stendur að útgáfu á.   Í þessari einstöku  bók greina 15 þjóðþekktir íslenskir blaðamenn frá  sjónarmiðum sínum og reynslu af blaðamennsku á seinni hluta 20. aldar og upphafi þessarar aldar. Formleg útgáfa bókarinnar var í húsakynnum BÍ í Síðumúlanum sl. föstudag að viðstöddum flestum þeirra sem rætt er við í bókinni. Guðrún Guðlaugsdóttir er höfundur viðtalanna og nær af næmni að skyggnast með viðmælendum sínum baksviðs í  frétta- og þjóðmálaumræðu á miklum umbrotatímum í Íslandssögunnar.  Þannig gefst einstakt tækifæri til að kynnast samtímis mikilvægum vendingum í fjölmiðlun á Íslandi og kynnast einstaklingum sem  öðrum fremur hafa stjórnað upplýsingastreymi  til almennings áratugum saman.  Viðtölunum fylgja nýjar glæsilegar portrettmyndir Kristins Ingvarssonar af viðmælendum.
Bókin hefur einnig að geyma einstakan  ljósmyndakafla sem byggir á fréttaljósmyndasafni Gunnars V.  Andréssonar sem hefur skráð með myndrænum hætti sögu þjóðarinnar í 50  ár. Bókinni lýkur á fræðilegri samantekt um fagvæðingu blaðamannastéttarinnar, sem Birgir Guðmundsson dósent við Háskólann á Akureyri skrifar, en hann er jafnframt ritstjóri bókarinnar.

Þeir  sem rætt er við í bókinni eru:   Björn Vignir Sigurpálsson, Magnús Finnsson, Steinar J Lúðvíksson, Kári  Jónasson, Ingvi Hrafn Jónsson, Freysteinn Jóhannsson, Árni Johnsen,  Jóhanna Kristjónsdóttir, Styrmir Gunnarsson, Kjartan L. Pálsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Gunnar V.  Andrésson, Jóhannes Reykdal, Úlfar Þormóðsson, og Sigurdór  Sigurdórsson.

Bókin kemur út í tilefni afmælis  Blaðamannafélagsins sem verður 120 ára á næsta ári.  Það er Blaðamannafélagið sem gefur út bókina í samvinnu við Sögur útgáfu og Háskólann á Akureyri.