Hugrakkar blaðakonur

Frá verðlaunaafhendingunni.F.v. Asmaa al-Ghoul, Khadija Ismayilova og Zubeida Mustafa. Reeyot Alemu …
Frá verðlaunaafhendingunni.F.v. Asmaa al-Ghoul, Khadija Ismayilova og Zubeida Mustafa. Reeyot Alemu er í fangelsi í Eþíópíu

Pistlahöfundurinn Reeyot Alemu, sem var fangelsuð á grundvelli umdeildra hryðjuverkalaga í Eþíópíu, rannsóknarblaðakonan  Khadija Ismayilova  sem starfar í útvarpi í Aserbaijan og hefur mátt búa við stöðugar hlernir og njósir m.a. á heimili sínu, og palestínski bloggarinn og sjálfstætt starfandi blaðakonan , Asmaa al-Ghoul,  sem hefur verið  barin og pínd fyrir að flytja fréttir af mótmælum á Gaza, fá allar viðukenninguna „Hugrekki í blaðamennsku“ sem  samtök kvenna í fjölmiðlum, Women's Media Foundation, veita.   Við verðlaunaafhendinguna í  New York í fyrradag var hinni sjötugu pakistönsku blaðakonu Zubeida Mustafa einnig veitt viðurkenning fyrir ævistarf sitt. Hún var fyrsta konan sem starfaði í hefðbundnum fjölmiðlum í Pakistan og hún vann alla tíð ötullega að því að greiða fyrir og breyta ráðningarmálum á fjölmiðlum í því skyni að fjölga konum.

Sjá meira hér og einnig hér