Framtíð miðlunarstarfa

Ráðstefna á vegum EGIN (European Graphic/Media Industry Network) og IÐUNNAR fræðslu seturs um framtíð miðlunarstarfa fer fram í Reykjavík þann 22. og 23. október næstkomandi. Þar verður fjallað um breytingar sem eru að verða og hafa orðið í heimi fjölmiðlunar og því starfsumhverfi sem  þessi heimur býður upp á. Innlendir og erlendir fyrirlesarar verða á ráðstefnunni , sem nær yfir tvo daga. Fyrri daginn verða fyrirlestrar og umræður e seinni daginn verða vinnustofur.  Ráðstefnan verður haldin á  Grandhóteli,  Sigtúni 38, í Reykjavík.   Félagar í BÍ geta sótt um verulegar niðurgreiðslu á ráðstefnugjaldi í Endurmenntunarsjóð BÍ.

 

Dagskrá:

Fimmtudagur 22. október

09.00 Opnun ráðstefnu - Anders Mosumgaard formaður EGIN og Hildur Elín Vignir  framkvæmdastjóri IÐUNNAR ávarpa ráðstefnuna.

09.10 Er pappírinn dauður? Eyrún Magnúsdóttir – Morgunblaðið

09.45 Hvernig lifir maður af í miðlunarheimi - Jan Vermoesen – Mediarte, Belgíi

10.20 Stutt tengslahlé

10.45 Samþætting miðlunar og Internetsins - Ragnheiður Magnúsdóttir – Hugsmiðjan

11.15 Framtíðarkröfur til starfsmanna í miðlunargreinum - Erik Stevens, GOC, Hollandi

12.00 Hádegismatur framreiddur á Grand hótel

13.00 Eins manns fjölmiðill - Atli Fannar Bjarkason, Nútíminn

13.30 Innri blaðamaðurinn - Stefan Hrafn Hagalín – Prentsmiðjan Oddi

14.00 Stutt tengslahlé

14.25 Fjölmiðlar og gögn, Hjálmar Gíslason, Qlik

15.00 Hver er framtíð starfsmanna á fjölmiðlum? Pallborð þar sem hópur sérfræðinga ræðir framtíð - starfsfólks á fjölmiðlum.

16.00 Degi eitt lýkur

19.30 EGIN fordrykkur og kvöldverður, Hótel Hilton Nordica.

Fundarstjóri Ingi Rafn Ólafsson, Sviðsstjóri prent- og miðlunarsviðs IÐUNNAR

Föstudagur 23. október

Vinnustofur fara fram í Tækniskólanum - tölvuhúsi. Þær verða byggðar á fyrirlestrum fyrri dags. Skipt verður í hópa og sem vinna í samvinnu við fyrirlesara fyrri dags.

09.00 Vinnustofa 1

09.30 Vinnustofa 2

10.00 Stutt tengslahlé

10.30 Vinnustofa 3

11.00 Vinnustofa 4

11.30 Hádegismatur í Tækniskólanum

12.30 Vinnustaðaheimsóknir

16.00 Degi tvö lýkur

Verð :

Fullt verð: 39.420 kr

Innifalið í verði: Kaffitímar, hádegismatur og kvöldmatur á fimmtudagskvöldi.

Skráning á: http://www.idan.is/future-of-media 

 

Ráðstefnan fer fram á ensku