Fallinni hetju vottuð virðing

ifjAlþjóðasamband blaðamanna og Evrópusamband blaðamanna hafa sent blaðamönnum í Úkraínu samúðarkveðjur vegna fráfalls fyrrum leiðtoga úkraínskra blaðamanna, Igors Luvchenko. „NUJU, Blaðamannafélag Úkraínu, hefur misst sinn mesta leiðtoga og öflugasta baráttumann. Igor barðist allt sitt líf fyrir málstað blaðamanna í Úkraínu. Ég vil fyrir hönd hinnar stóru blaðamannafjölskyldu heimsins votta þessari hetju virðingu okkar og færa vinum og ættingjum okkar dýpstu samúðarkveðjur,“ segir Jim Boumella forseti Alþjóða blaðamannasambandsins, IFJ.
Sjá einnig hér