Erfitt hjá götublöðum í NY

Vestan hafs tala menn nú um „bleksvartan föstudag“ þegar vísað er til síðasta föstudags en útgefendur í New York luku vinnuvikunni á sérstaklega svörtum nótum. Verulegur niðurskurður með tilheyrandi uppsögnum eru nú yfirvofandi hjá báðum helstu götublöðum borgarinnar, Daily News og New York Post. Í því óvissuástandi sem ríkir í útgáfunni koma fréttirnar frá vikublaðinu Village Voice sem greindi frá því fyrirhelgina að uppsagnir væru í bígerð hjá keppinautunum og þar á meðal yrðu þekktir dálkahöfndar og blaðamenn látnir fara líka.

Sjá einig hér