EFJ: Mikilvægt að skapa blaðamennskunni gott umhverfi

Mogens Blicher Bjerregård
Mogens Blicher Bjerregård

Mogens Blicher Bjerregård, forseti Evrópusambands blaðamanna (EFJ) segir í leiðara nýjasta fréttabréfs sambandsins að í kjölfar Panamaskjalanna og „Luxlekanna“ efist varla nokkur maður um mikilvægi  rannsókna- og  hágæðablaðamennsku fyrir lýðræðislega stjórnarhætti. Slíkir atburðir og eftirmálar þeirra sýni hve brýnt sé að samfélög fjárfesti í blaðamennsku og skapi henni skilyrði þannig að blaðamenn geti unnið störf sín í umhverfi þar sem fjölmiðlafrelsi, viðunandi starfsskilyrði og höfundaréttur sé til fyrirmyndar.  Þetta verður meðal annars á dagskránni á aðalfundi EFJ sem haldinn er í dag og á morgun í Sarajevo.

 Sjá fréttabréf EFJ hér