EFJ hyggst ræða hlutverk fagfélaga

Aðalfundur Evrópusambands blaðamanna verður haldinn í Budva í Svartfjallalandi þann  1-2 júní næstkomandi.  Gestgjafi verður aðildarfélag EFJ, Fjölmiðlasamband Svartfjallalands.   Viðfangsefnið á þessum aðalfundi verður umræða um hlutverk og möguleika blaðamannafélaga og er yfirskrift fundarins: „Styrkari starfsréttindi fyrir blaðamenn:  aukinn styrkur fagfélaga á tímum breytinga.“   Þá hefur verið skipulagður  á mánudagskvöldinu sérstakur viðburður þar sem rætt verður ástandið milli Úkraínu og Rússlands.

Sjá bráðabirgðadagskrá hér