EFJ: Fordæmir ákæru fyrir að birta Lúxemorgar-lekagögn

Evrópusamband blaðamanna (EFJ) hefur fordæmt ákvörðun stjórnvalda í Lúxemborg að ákæra franska blaðamanninn Édouard Perrin fyrir að birta trúnaðarupplýsingar frá endurskoðunarfyrirtækinu PricewaterhouseCooper (PwC) um skattasamninga sem fjölþjóðafyrirtæki gerðu þar í landi, upplýsingar sem þekktar eru undir nafninu „Luxleaks“.  Málið er mjög sérstakt og minnir á umkvartanir  og umræðu hér á landi árið 2009 þegar Fjármálaeftirlitið sendi saksóknara mál fimm blaðamanna á þeirri forsendu að þeim væri óheimilt að birta upplýsingar úr lánabók Kaupþings sem lekið hafði til þeirra.  Samkvæmt ákærunni á hendur Perrin er honum gefið að sök að hafa verið meðhöfundur ef ekki vitorðsmaður í leka frá fyrrum starfsmönnum PwC.   Ricardo Gutierrez framkvæmdastjóri EFJ segir það skammarlegt að stjórnvöld í Luxemborg skulu elta uppi blaðamann fyrir að gera skyldu sína sem sé að birta upplýsingar sem þjóni almannahagsmunum.

Sjá einnig hér