Breytingar á samningi samþykktar

Breytingar á kjarasamningi Blaðamannafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins dags 15. mars 2016 voru bornar undir atkvæði félagsmanna BÍ í dag föstudaginn 18. mars og voru samþykktar þar samhljóða og án nokkurra mótatkvæða.  

Kjarasamningurinn svo breyttur hefur því verið staðfestur og gildir samkvæmt ákvæðum sínum.

Jafnframt hafa í dag verið samþykktar samhljóða og án mótatkvæða sambærilegar breytingar á samningi BÍ og DV sem hafa einnig tekið gildi.