Blaðamannaverðlaun: Tilnefningarfrestur til 27. janúar

Verðlaunanefnd Blaðamannaverðlauna BÍ óskar eftir tilnefningum til verðlauna fyrir árið 2016, en verðlaunin verða veitt í 14. skipti þann 3. mars næstkomandi. Tilnefningar dómnefndar verða kynntar viku fyrir afhendingu en skilafrestur tilnefninga til dómnefndar er kl. 12 á hádegi föstudaginn  27. janúar 2017.

Eins og síðustu ár verða verðlaunin veitt í fjórum flokkum:

• Besta umfjöllun ársins 2016 

• Viðtal ársins 2016

• Rannsóknarblaðamennska ársins 2016 

• Blaðamannaverðlaun ársins 2016

Hægt er að senda inn tilnefningar til verðlaunanna til skrifstofu Blaðamannafélagsins í Síðumúla  23 á auglýstum skrifstofutíma ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni. Jafnframt er hægt að senda tilnefningar inn rafrænt.

Tilnefningar dómnefndar verða gerðar kunnar föstudaginn 24. febrúar. Viku síðar, þann 3. mars, verða verðlaunin sjálf afhent. 

Sjá reglugerð um Blaðamannaverðlaun B.Í.