Blaðamannaverðlaun: Tilnefningar dómnefndar

 Dómnefnd Blaðamannaverðlauna Blaðamannafélags Íslands hefur nú birt tilnefningar sínar til verðlaunanna sem afhent verða á laugardaginn eftir viku, þann 4. mars. Samkvæmt reglugerð um verðlaunin skal dómnefnd birta þrjár tilnefningar í hverjum af fjórum flokkum verðlaunanna. Tilnefningar dómnefndar eru þessar:

Viðtal ársins
Auður Ösp Guðmundsdóttir, DV.
Fyrir viðtal við Margréti Fenton um örlög dóttur hennar, Söndru Sigrúnar, sem afplánar nú 37 ára fangelsi fyrir vopnuð rán í Bandaríkjunum.

Helgi Seljan, Kastljósi RÚV.
Fyrir viðtal við hjónin Sigríði Eyrúnu Friðriksdóttur og Karl Olgeirsson um barnsmissi sem þau urðu fyrir vegna mistaka í fæðingu á Landspítalanum.

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Stundinni.
Fyrir viðtal við Berglindi Ósk Guðmundsdóttur sem segir sögu systur sinnar, Kristínar Gerðar, sem svipti sig lífi eftir áralanga baráttu við eiturlyfjafíkn og afleiðingar misnotkunar.

Rannsóknarblaðamennska ársins
Hörður Ægisson, DV.
Fyrir umfjöllun um milljarða bónusgreiðslur slitastjórna Kaupþings og ALMC sem greiddar voru í kjölfar nauðasamninga og samninga um stöðugleikaframlag. 

Tryggvi Aðalbjörnsson, RÚV.
Fyrir umfjöllun um brot Brúneggja ehf. gegn dýravernd og svik við neytendur og máttleysi eftirlitsstofnana til að takast á við brotin.

Þórður Snær Júlíusson, Kjarnanum.
Fyrir fréttaskýringar um skiptingu auðs á Íslandi og misskiptingu gæða þrátt fyrir lítinn launamun í alþjóðlegum samanburði .

Umfjöllun ársins
Guðrún Hálfdánardóttir, Mbl.is
Fyrir fréttaskýringar um Sýrland, vaxandi þjóðernishyggju í tengslum við flóttamenn þaðan og lítinn áhuga ráðamanna í Evrópu fyrir að taka á móti þeim.

Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, Stöð 2
Fyrir þáttaröðina Leitin að upprunanum sem segir sögu þriggja ættleiddra kvenna og árangursríka eftirgrennslan landa á milli um rætur þeirra.

Svavar Hávarðsson, Fréttablaðinu
Fyrir fréttaröð um náttúruperluna Mývatn, þar sem mengun er margfalt yfir viðmiðum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, líkast til af mannavöldum.

Blaðamannaverðlaun ársins
Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, RÚV.
Fyrir skilmerkilega umfjöllun um íslensk stjórnmál og vandaðar fréttaskýringar af störfum Alþingis, ekki síst á tímum pólitísks óróa.

Jóhannes Kr. Kristjánsson,  Reykjavík Media.
Fyrir ítarlegar rannsóknir á þeim hluta Panamaskjalanna sem vörðuðu íslenska hagsmuni og  umfjöllun, í samstarfi við aðra miðla, um mikil viðskipti í skattaskjólum.

Ragnar Axelsson og Orri Páll Ormarsson,  Morgunblaðinu.
Fyrir áhrifamikla umfjöllun um áhrif loftslagsbreytinga á Norðurslóðum og sérstaklega hvernig þær breyta lífinu á túndrum Síberíu.