Blaðamannastörf um allan heim

atvinnaEvrópska blaðamannamiðstöðin (EJC) hefur sett upp miðlægan vef, JournaJobs.eu, þar sem blaðamenn heimsins – sem nota hin ýmsu tungumál – geti séð á einum stað hvaða störf eru í boði. Þarna eru skráð bæði tímabundin verkefni og fastar stöður af öllu tagi. Íslenskum blaðamönnum sem öðrum gefst þarna tækifæri á að skoða hvaða störf eru í boði út um allan heim ef þeir á annað borð treysta sér til að vinna á því tungumáli sem gildir á viðkomandi vinnustað.
Sjá hér