Blaðamannaklúbburinn

Hér má sjá Hjálmar Jónsson formann BÍ og nokkra gamla félagsmenn ræða málin í nýja salnm á dögunum e…
Hér má sjá Hjálmar Jónsson formann BÍ og nokkra gamla félagsmenn ræða málin í nýja salnm á dögunum en salurinn hefur nú hlotið nafnið Blaðamannaklúbburinn

Við formlega opnun nýja salarins í húsakynnum BÍ sl. föstudagskvöld var salnum gefið nafnið  Blaðamannaklúbburinn. en nafnið vísar til samkomustaðar blaðamanna í turnherbergi á Hótel Borg í upphafi sjöunda áratugarsins sem kallað var Blaðamannaklúbburinn. Við þetta sama tækifæri voru níu blaðamenn heiðraðir fyrir yfir 40 ára feril í blaðamennsku og fengu þeir gullmerki BÍ. Þeir sem merkið fengu voru:   Freysteinn Jóhannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Gunnar V. Andrésson, Sigurdór Sigurdórsson, Sigmundur Ó. Steinarsson, Þröstur Haraldsson, Arnór G. Ragnarsson, Árni Jörgensen og Ágúst Ingi Jónsson.