Blaðamannahátíð í Ráðhúsinu

Blaðamannaverðlaun BÍ verða veitt á morgun og á sama tíma verða verðlaun veitt fyrir Myndir ársins ásamt því að árleg sýning Blaðaljósmyndarafélagsins á bestu myndum ársins 2016 verður opnuð. Opnun sýningarinnar og verðlaunaafhending hefst klukkan 15.00 í Tjarnarsalnum í Ráðhúsinu í Reykjavík.

Eins og  síðustu ár verða Blaðamannaverðlaunin veitt í fjórum flokkum en þeir eru þessir:

• Besta umfjöllun ársins 2016 
• Viðtal ársins 2016
• Rannsóknarblaðamennska ársins 2016 
• Blaðamannaverðlaun ársins 2016

Þau sem tilnefnd eru af dómnefnd í flokkunum fjórum eru eftirfarandi:

Viðtal ársins

Auður Ösp Guðmundsdóttir, DV. Fyrir viðtal við Margréti Fenton um örlög dóttur hennar, Söndru Sigrúnar, sem afplánar nú 37 ára fangelsi fyrir vopnuð rán í Bandaríkjunum.

Helgi Seljan, Kastljósi RÚV. Fyrir viðtal við hjónin Sigríði Eyrúnu Friðriksdóttur og Karl Olgeirsson um barnsmissi sem þau urðu fyrir vegna mistaka í fæðingu á Landspítalanum.

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Stundinni. Fyrir viðtal við Berglindi Ósk Guðmundsdóttur sem segir sögu systur sinnar, Kristínar Gerðar, sem svipti sig lífi eftir áralanga baráttu við eiturlyfjafíkn og afleiðingar misnotkunar.

 

Rannsóknarblaðamennska ársins

Hörður Ægisson, DV.  Fyrir umfjöllun um milljarða bónusgreiðslur slitastjórna Kaupþings og ALMC sem greiddar voru í kjölfar nauðasamninga og samninga um stöðugleikaframlag. 

Tryggvi Aðalbjörnsson, RÚV. Fyrir umfjöllun um brot Brúneggja ehf. gegn dýravernd og svik við neytendur og máttleysi eftirlitsstofnana til að takast á við brotin.

Þórður Snær Júlíusson, Kjarnanum. Fyrir fréttaskýringar um skiptingu auðs á Íslandi og misskiptingu gæða þrátt fyrir lítinn launamun í alþjóðlegum samanburði .


Umfjöllun ársins

Guðrún Hálfdánardóttir, Mbl.is. Fyrir fréttaskýringar um Sýrland, vaxandi þjóðernishyggju í tengslum við flóttamenn þaðan og lítinn áhuga ráðamanna í Evrópu fyrir að taka á móti þeim.

Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, Stöð 2. Fyrir þáttaröðina Leitin að upprunanum sem segir sögu þriggja ættleiddra kvenna og árangursríka eftirgrennslan landa á milli um rætur þeirra.

Svavar Hávarðsson, Fréttablaðinu. Fyrir fréttaröð um náttúruperluna Mývatn, þar sem mengun er margfalt yfir viðmiðum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, líkast til af mannavöldum.


Blaðamannaverðlaun ársins

Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, RÚV. Fyrir skilmerkilega umfjöllun um íslensk stjórnmál og vandaðar fréttaskýringar af störfum Alþingis, ekki síst á tímum pólitísks óróa.

Jóhannes Kr. Kristjánsson,  Reykjavík Media. Fyrir ítarlegar rannsóknir á þeim hluta Panamaskjalanna sem vörðuðu íslenska hagsmuni og  umfjöllun, í samstarfi við aðra miðla, um mikil viðskipti í skattaskjólum.

Ragnar Axelsson og Orri Páll Ormarsson,  Morgunblaðinu.  Fyrir áhrifamikla umfjöllun um áhrif loftslagsbreytinga á Norðurslóðum og sérstaklega hvernig þær breyta lífinu á túndrum Síberíu.

*** 

Á sýningunni Myndir ársins eru að þessu sinni 109 myndir sem valdar hafa verið af dómnefnd úr rúmlega 900 myndum 37 blaðaljósmyndara. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson mun opna sýninguna formlega.

Veitt verða verðlaun í 8 flokkum, þ.e. fyrir Mynd ársins og fyrir bestu fréttamyndina, umhverfismyndina, portrett myndina, íþróttamyndina, daglegt líf, tímaritamynd og myndröð ársins. Bók með bestu blaðaljósmyndum ársins 2016 kemur út við þetta tækifæri og verður kynnt á sýningunni.

Sýningin mun standa til 20. mars