BBC 90 ára í dag

Í dag fagnar BBC útvarpið því að 90 ár eru liðin frá fyrstu útsendingu þess. Af því tilefni munu allar útvarpsrásir BBC sameinast í útsendingu kl 17:33.  Hér er um 60 útvarpsrásir  að ræða, staðbundnar í Bretlandi og á landsvísu og svo útvarp sem starfar í alþjóðlegu samhengi. Alls verður sameiginleg útsending í um 3 mínútur þar sem brotum úr sögulegu efni verður útvarpað.

Sjá meira hér