Ályktun BÍ vegna yfirvofandi gjaldþrots Torgs

Ályktun stjórnar Blaðamannafélags Íslands vegna yfirvofandi gjaldþrots Torgs

Stjórn Blaðamannafélags Íslands lýsir þungum áhyggjum af því að stjórnvöld hafi brugðist þegar kemur að því að standa vörð um lýðræðið með aðgerðum til stuðnings einkarekinna miðla. Yfirvofandi gjaldþrot útgáfufélags Fréttablaðsins, sem tilkynnt var um í dag, er ekki einungis áfall fyrir öll þau sem misstu vinnuna í dag, heldur fyrir fjölmiðlamarkaðinn í heild sinni og tjón fyrir samfélagið allt. Stjórnvöld hafa brugðist þrátt fyrir að félagið hafi árum saman bent á alvarlega stöðu fjölmiðla á Íslandi. Gjaldþrot Torgs er staðfesting á þeim algjöra markaðsbresti sem orðið hefur með tilkomu tæknirisa á borð við Google og Facebook sem hirða nú helming alls fjármagns úr íslenskum auglýsingamarkaði sem gerir það að verkum að 12 milljarðar leka úr landi án þess að stjórnvöld spyrni við fótum.

Stjórn Blaðamannafélagsins lýsir vonbrigðum yfir því að stjórnarflokkarnir hafi ekki dug til þess að takast á við þetta alvarlega vandamál með frekari aðgerðum til stuðnings einkareknum miðlum – heldur afvegaleiði sífellt umræðuna þess í stað, með því að gera það að skilyrði að RÚV verði tekið af auglýsingamarkaði, án þess að því fylgi raunverulegur ásetningur. Stjórn Blaðamannafélagsins krefst þess að stjórnvöld hætti að nota RÚV sem afsökun fyrir því að styðja ekki betur við einkarekna miðla og varar við því að ef ekkert verður að gert er raunveruleg hætta á því að fleiri miðlar fari á sama veg og Fréttablaðið, með tilheyrandi tjóni fyrir samfélagið. Því það er óumdeilt að frjálsir fjölmiðlar eru forsenda lýðræðis. Um þá þurfum við sem samfélag að standa vörð – sama hvað það kostar.

F.h. stjórnar Blaðamannafélags Íslands
Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður