Blaðamannadagurinn 1. apríl

Blaðamannafélag Íslands stendur fyrir blaðamannadeginum 1. apríl nk. Markmiðið er að vekja athygli á mikilvægi blaðamennsku, vekja áhuga á fjölmiðlum og stéttinni og veita innsýn í það mikilvæga starf sem blaðamenn vinna í þágu samfélagsins og lýðræðisins.

Hápunktur dagsins verður veiting blaðamannaverðlaunanna sem fram fer í húsnæði félagsins að Síðumúla 23 en áður en þau verða veitt verður haldið ör-málþing,  samtal um blaðamennsku. Kvöldinu lýkur svo með drykk og léttum veitingum í sal BÍ.

Flestir af stærstu fjölmiðlum landsins ætla að opna dyr sínar og bjóða fólki í heimsókn og spjall sbr dagskrá hér að neðan. Borgarbókasafnið stillir af þessu tilefni fram bókum um blaðamenn og blaðamennsku. 

Verið er að leggja lokahönd á dagskrá en hér er listi yfir það sem þegar hefur verið staðfest:

Dagskrá:

Kl. 11-12 Opið hús hjá Stundinni
Aðalstræti 2

Kl. 13 Heimsókn á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar
Suðurlandsbraut 10. Skrá þarf þáttöku í gegnum netfangið anita@stod2.is

Kl. 14-15 Opið hús hjá Viðskiptablaðinu
Ármúla 10. 

Kl. 15 Heimsókn á ritstjórn Fréttablaðsins og DV
Hafnartorgi. Mæting í anddyri gegnt Arnarhóli.

Kl. 16 Heimsókn á fréttastofu og fréttastúdíó RÚV
Efstaleiti 1. Skrá þarf þátttöku í gegnum netfangið mottaka@ruv.is

Kl. 17-19 Málþing og blaðamannaverðlaunin 2021
Skrifstofur Blaðamannafélags Íslands, Síðumúla 23, 108 Reykjavík

Ör-málþing: Samtal um blaðamennsku:

Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður BÍ: Blaðamennska og lýðræðið
Björn Vignir Sigurpálsson, fv. blaðamaður á Morgunblaðinu: Blaðamennska þá og nú - Úr blýi og út í buskann
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ritstjóri Stundarinnar: Blaðamennska og samfélagsmiðlar
Aðalsteinn Kjartansson, varaformaður BÍ og situr í nefnd um endurskoðun siðareglna: Blaðamennska og siðareglur
Snorri Másson, fréttamaður á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni: Blaðamennska og blaðamannahlutverkið - sjónarhorn nýliða
Umræður í pallborði
Fundarstjóri: Anna Lilja Þórisdóttir, fréttamaður á RÚV.

Að málþingi loknu verða Blaðamannaverðlaunin 2021 veitt. Þrjár tilnefningar eru í hverjum  af fjórum flokkum verðlaunanna, en þeir eru:  Besta umfjöllun ársins 2021,  Viðtal ársins 2021,  Rannsóknarblaðamennska ársins 2021 og   Blaðamannaverðlaun ársins 2021. Nánari upplýsingar um tilnefningar má lesa hér.

Boðið verður upp á drykki og léttar veitingar að verðlaunaafhendingu lokinni.

Aðrir viðburðir laugardag og sunnudag:

Laugardaginn 2. apríl: Kl. 15 verður opnuð sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands og Ljósmyndasafns Reykjavíkur og verðlaun fyrir blaðaljósmyndir ársins 2021 veitt. Sunnudaginn 3. apríl kl. 14 verður sýningarspjall með Eyþóri Árnasyni ljósmyndara um myndir ársins 2021.

Opið hús Háskólatorgi Háskóla Íslands laugardaginn 2. apríl nk. milli kl. 12 og 15. Þar verða námsleiðir skólans kynntar m.a. nám í blaða- og fréttamennsku