- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Aðskilnaður Fréttablaðsins frá 365, þ.e. Stöð 2, Bylgjunni og Vísi er smá saman að taka á sig mynd og enn eitt skrefið var stigið þegar Þórir Guðmundsson, sem verið hefur forstöðumaður Rauða krossins í Reykjavík var ráðinn fréttastjóri Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis. Þórir tekur við af Kristínu Þorsteinsdóttur. Þórir hefur MA próf í alþjóðlegum samskiptum frá Boston University og BA gráðu í blaða- og fréttamennsku frá Kansas. Hann er vel kunnur fréttamenskunni en hann var áður fréttamaður á Stöð 2 fyrst frá 1986-1999 og svo aftur frá 2005- 2008
Þórir Guðmundsson hefur verið ráðinn fréttastjóri Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis. Starfsmönnum fréttastofunnar var greint frá ráðningu Þóris í morgun.