- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Í nótt var prentvél Ísafoldarprentsmiðju stöðvuð og skipt var um forsíðu á blaðinu vegna stjórnarslitanna. Hluti upplagsins kom því út með forsíðufrétt um stjórnarslitin en restin af upplaginu, sem farin var af stað í dreifingu hafði ekki þessa frétt.
Það er afar sjaldgæft að prentvélarnar séu stöðvaðar og skipt um forsíðu með þessum hætti og hefur ekki gerst í mörg ár hér á Íslandi eftir því sem press.is kemst næst. Síðast mun það hafa verið gert á Morgunblaðinu fyrir hálfum öðrum áratug eða svo.