- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Hótel Hilton Nordica Reykjavík
27. september kl. 12 - 14
Réttur til að vita ...
Skráningarform
Ráðstefnan er haldin í tilefni af International Right to Know Day sem haldinn hefur verið víða um heim þann 28. september frá árinu 2003. Tilgangur dagsins er að leggja áherslu á að réttur einstaklinga til upplýsinga sé virtur og aðgengi að upplýsingum sem vistaðar eru hjá stjórnvöldum sé opið og gagnsætt.
Ráðstefnan er ætluð þeim sem hafa áhuga á að rétturinn til að vita sé virtur, bæði borgurum og þeim sem bera ábyrgð á vistun og miðlun upplýsinga.
Leitast verður við að svara eftirfarandi spurningum:
- Hvað felst í þessum degi?
- Hvað gera önnur lönd?
- Hver eru vandamálin við upplýsingagjöf á Íslandi í dag?
- Hver er réttur almennings til upplýsinga?
- Hvernig er lagaumhverfið?
- Hvað get ég fengið að vita um sjálfan mig?
Dagskrá:
11:50 Afhending ráðstefnugagna
12:00 Fundur settur - hádegisverður borinn fram
12:20 Hvað felst í alþjóðlegum degi um réttinn til að vita?
Jóhanna Gunnlaugsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands
12:30 Persónuupplýsingar
Hörður Helgi Helgason, lögmaður og forstjóri Persónuverndar
12:55 Opin gögn á Íslandi í samanburði við önnur lönd
Fulltrúi frá Open Knowledge Foundation á Íslandi
13:20 Hvað er nýtt í Upplýsingalögunum?
Trausti Fannar Valsson, Háskóla Íslands
13:45 Mat borgaranna: Af hverju leyna stjórnvöld upplýsingum sem eiga erindi við almenning?
Jóhanna Gunnlaugsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands
14:00 Fundarlok
Ráðstefnustjóri: Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis