- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Samtökin Mediacongress hafa nú boðið til ráðstefnu fyrir unga blaðamenn undir yfirskriftinni „Samræða menningarheima“. Ráðstefnan mun fara fram á State Hermitage safninu í St. Pétursborg 21 – 23 nóvember næstkomandi. Ungum blaðamönnum frá Evrópulöndum, á aldrinum 18 – 35 ára, þar á meðal frá Íslandi er sérstaklega boðið að taka þátt í ráðstefnunni en þeir verða að standa sjálfir straum af kostnaði við ferðir og gistingu en fá frí ráðstefnugjöld. Þess má geta að för á ráðstefnu af þessu tagi getur verið styrkhæf úr Endurmenntunarsjóði BÍ.