- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Pulizerverðlaunin voru tilkynnt í BNA í dag en þau eru veitt í 21 flokki, 7 flokkum fyrir bókmenntir/tónlist/leiklist og 14 flokkum fyrir blaðamennsku.
New York Daily News og ProPublica fengu verðlaun I flokknum umfjöllun í almannaþágu fyrir umfjöllum um misnotkun á útburðarreglum þar sem hundurð manna, mest fátækt fólk og fólk sem tilheyrir minnihlutahópum er borið út. Í þessum flokki er "Gullmedalían" veitt, sem er til að undirstrika mikilvægi hans.
Í flokknum um fréttaskýringar (Explanatory Reporting) fengu Alþjóðasamt0k rannsóknarblaðamanna (International Consortium of Investigative Journalists, ICIJ), McClatchy og Miami Herald verðlaun fyrir umfjöllun um Panamaskjölin.
Fyrir fréttaumfjöllun (breaking news) fékk ritstjorn East Bay Times, í Okland verðlaun fyrir ítarlega umfjöllun um Drauagaskips eldsvoðann þar sem 36 manns létust og fyrir eftirfylgni með því máli sem sýndi hvernig borgaryfirvöld höfðu trassað að grípa til forvarnaraðgerða sem komið hefðu í veg fyrir þennan harmleik.
Fyrir rannsóknarblaðamennsku fékk Eric Eyre blaðamaður hjá Charleston Gasatte-Mail verðlaunin fyrir hugrakka umfjöllun um ótrúlegr flæði opiod-lyfja ( tegund verkjalyfja) í Vestur Virginíu þar sem efnhags- og félagslegt ástand er slakt og þar sem hlutfall ofnotkunar er hæst í Bandaríkjunum.
Fleiri verðlaunaflokka má sjá hér.