- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Norðmenn ræða nú fjármögnunaraðferðir fyrir NRK, norska ríkisútvarpið og eru uppi skiptar skoðanir um hvaða leiðir eigi að fara. Umræðan er ekki ósvipuð því sem var hér á landi fyrir nokkrum árum enda sambærilegar tillögur á borðinu, þ.e. að hafa annars vegar afnotagöld og hins vegar að taka upp sérstakt útvarpsgjald og fjármögnun fari í gegnum fárlögin. Thor Gjermund Eriksen, útvarpsstjóri NRK hefur lýst sig andvígan því að fjármögnun fari í gegnum fjárlög enda telfli það óhæði stofnunarinnar í hættu. Ýmsir þingmenn Verkamannaflokksins hafa einnig viðrað svipaðar áhyggjur, og bent á að um leið og fjárveitingin komi úr hinu pólitíska umhverfi opnist fyrir þann möguleika að fréttir og dagskrárstefna taki raunverulegt eða ímyndað mið af pólitískum straumum hverju sinni.
Þetta gerist samhliða því að verið er að skoða möguleika á að koma upp einkarekinni almennings sjónvarpsstöð með línulega útsendingu sem myndi veita NRK ákveðið aðhald. Ýmsar útfærslur hafa verið ræddar varðandi slíkan möguleika, en í öllum tilfellum væri þá veittur stuðningur gegn ákveðnum skilyrðum um hlutfall frétta og upplýsingarefnis í dagskránni.