- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Könnun sem gerð var með stuðningi Evrópuráðsins og náði til 940 blaðamanna í aðildarríkjunum 47 auk Hvíta-Rússlands sýnir að blaðamenn í Evrópu verða iðulega fyrir alvarlegum og tilefnislausum aðdróttunum eða truflunum við störf sín sem birtist meðal annars í formi ofbeldis, ótta eða sjálfs-ritskoðunar.
Um þriðjungur svarenda (31%) sagðist hafa orðið fyrir líkamlegri árás á síðast liðnum þremur árum. Algengasta truflunin eða inngripið sem blaðamenn nefndu eða um 69% þeirra, var sálrænt ofbeldi svo sem niðurlæging, ógnanir hótanir, slúður og ófrægingarherferðir. Næst algengast (53%) var að blaðamennirnir nefndu einhvers konar net-einelti, einkum í formi ásakana um að vera hlutdrægur, eða persónulegra árása eða þá að rógur eða ófræging af einhverju tagi. Í þriðja sæti var ógnun frá hagsmunagæsluhópum hvers konar (50%) og í fjórða sæti ógnanir frá pólitískum hópum(43%).
Það má lesa meira um þessa könnun hér