- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Norræna blaðamannamiðstöðin í Árósum (Nordisk Journalistcenter, NJC) býður upp á námskeið fyrir fjölmiðlafólk í notkun samfélagsmiðla og hvernig best er að ná út til fólks með texta og myndir á netmiðlum. Námskeiðið verður haldið dagana 21. og 22. apríl nk. í húsakynnum Blaðamannafélags Íslands í Síðumúla. Alls geta 16-20 manns sótt námskeiðið en þátttaka er endurgjaldslaus.
Kristian Ströbech er sjálfstætt starfandi leiðbeinandi og nýtur mikilla vinsælda sem kennari í notkun alls kyns netmiðla. Hann kynnir ólík dæmi og býður upp á verklegar æfingar. Fyrstir koma, fyrstir fá.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir marslok til Sigrúnar Stefánsdóttur í síma 8614499 eða sigruns@unak.is
Nánari lýsing á námskeiðinu er hér
Þá er ástæða til að benda á námskeið NJC um rússnesk stjórnmál og forsetakosningarnar 2020 sem sjá má hér
Einnig um kynnis- og upplýsingaferð á vegum NJC til Kaliningrad hér