- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Blaðamannafélagi Íslands, elsta blaðamannafélagi á Norðurlöndum barst á sunnudaginn, þann 19. nóvember 2017, heillaóskaskeyti frá Norræna blaðamannasambandinu. Blaðamannafélagið varð einmitt 120 ára á sunnudaginn, en afmælisfagnaður félagsins verður haldinn næstkomandi föstudag kl 19.00 24. nóvember, í Blaðamannaklúbbnum í Síðumúla 23. (sjá viðburð á Facebook)
Í skeyti Norræna blaðamannasambandsins sem formaður þess, Hanne Aho frá Finnlandi sendir, segir: „Norræna blaðamannasambandið óskar elsta meðlimi sínum, Blaðamannafélagi Íslands allra heilla á 120 ára afmæli sínu. Blaðamenn og gagnrýnin, sjálfstæð vinna þeirra sem grundvölluð er á gæða blaðamennsku er nú mikilvægari en nokkru sinni. Höldum áfram góðu starfi!“