- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Nefnd forsætisráðherra um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis hefur kynnt niðurstöður sínar. Nefndin skilaði fjórum frumvörpum til ráðherra sem bætast í hóp fimm frumvarpa sem nefndin vann í fyrri áfanga nefndarstarfsins. Nefndin hefur nú lokið verkefnum sínum samkvæmt skipunarbréfi en forsætisráðherra hyggst jafnframt fela nefndinni að gera tillögur til stjórnvalda um hvernig bregðast megi við upplýsingaóreiðu á grundvelli lýðræðislegra grundvallarreglna.
Frumvörpin eru birt í samráðsgátt stjórnvalda og er efnt til tveggja vikna opins samráðs um efni þeirra.
2. Frumvarp til laga um vernd uppljóstrara.
Í nefndinni sátu: Eiríkur Jónsson, prófessor, formaður, Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, varaformaður, Birgitta Jónsdóttir, stjórnarformaður International Modern Media Initiative (IMMI), Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands, Sigríður Rut Júlíusdóttir, hæstaréttarlögmaður, Elísabet Gísladóttir, lögfræðingur í dómsmálaráðuneytinu, Þröstur Freyr Gylfason, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Þorgeir Ólafsson, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneytinu (fram til 11. janúar sl. Elísabet Pétursdóttir). Með nefndinni starfaði Oddur Þorri Viðarsson, lögfræðingur í forsætisráðuneytinu.