- Félagið & fagið
- Kaup & kjör
- Styrkir & sjóðir
- Orlofskostir
- Mínar síður
Verðlaunanefnd Blaðamannaverðlauna BÍ óskar eftir tilnefningum til verðlauna fyrir árið 2017, en verðlaunin verða veitt í 15. skipti þann 3. mars næstkomandi. Tilnefningar dómnefndar verða kynntar viku fyrir afhendingu en skilafrestur tilnefninga til dómnefndar er kl. 12 á hádegi föstudaginn 26. janúar 2017.
Eins og síðustu ár verða verðlaunin veitt í fjórum flokkum:
Hægt er að senda inn tilnefningar til verðlaunanna til skrifstofu Blaðamannafélagsins í Síðumúla 23 á auglýstum skrifstofutíma ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni. Jafnframt verður hægt að senda tilnefningar inn rafrænt a hnappi settur verður hér inn á síðuna strax eftir helgi.
Tilnefningar dómnefndar verða gerðar kunnar laugardaginn 24. febrúar. Viku síðar, þann 3. mars, verða verðlaunin sjálf afhent.